Höf: Linda Björk Jónsdóttir // Mynd: Sigríður Jónsdóttir. Hundar af stórum og mjög stórum hundategundum lifa að meðaltali mun styttra en hundar af minni tegundum. Bein tenging er á milli stærðar hunda og líftíma þeirra, hundar af stærstu hundategundunum lifa að meðaltali í um 7 til 8 ár á meðan hundar af minni hundategundum lifa að meðaltali lengur en í 12 ár.
Það er ótal margt sem hægt er að gera til að heimilishundurinn lifi sem lengsta og heilbrigðasta lífinu, en þar má nefna atriði eins og að halda honum í heilbrigðri þyngd og hugsa um líkamlega og andlega heilsu hans, en þrátt fyrir góða umhirðu og heimili fullt af ást og umhyggju getum við ekki breytt erfðamengi hundsins. Lyfjafyrirtækið Loyal for dogs í Bandaríkjunum hefur unnið að því að þróa lyf sem meðal annars er ætlað hundum af stórum og mjög stórum hundategundum með það að markmiði að lengja líf þeirra og lengja tímann sem hundarnir búa að góðri heilsu. Markmið fyrirtækisins er að hægt verði að lengja líf hunda um að minnsta kosti 1 ár. Um er að ræða lyfin LOY-001, LOY-002 og LOY-003 sem hafa ekki verið samþykkt hjá bandarísku lyfja og -matvælastofnununni (FDA). Verður hægt að lengja líf stóru hundanna? Lyfin sem kallast LOY-001 og LOY-003 eru einungis ætluð stórum og mjög stórum hundum. Lyfjunum er ætlað að seinka ótímabærri öldrun og lengja líf hunda. Um er að ræða sama lyf í mismunandi lyfjaformi. Lyfið LOY-001 er gefið í sprautuformi á þriggja til sex mánaða fresti og LOY-003 er gefið í töfluformi daglega. Lyfið lækkar insúlínlíkan vaxtarþátt 1 (IGF-1) sem er hormón sem mælist oft hærra hjá stórum hundategundum og lægra hjá þeim minni. Rannsóknir gefa vísbendingar um að hækkað magn af þessu tiltekna hormóni hafi neikvæð áhrif á líftíma og hraði hugsanlega öldrunarferlinu. Aukaverkanir af lyfinu sem hafa komið fram hingað til eru mild og tímabundin óþægindi í meltingavegi. Þrátt fyrri að vera á forklínísku stigi í rannsóknum hefur FDA gefið út að lyfið lofi góðu. Fái lyfið samþykki FDA gæti það verið aðgengilegt hundaeigendum með milligöngu dýralækna árið 2026. Lyf sem gæti seinkað öldrun og lengt líf flestra hunda Lyfið sem hefur fengið heitið LOY-002 er ætlað að lengja líftíma og seinka öldrun fyrir hunda af öllum stærðum og gerðum að undanskildum þeim allra minnstu. Lyfið er talið bæta efnaskiptahæfni líkamans sem talið er lengja líf og bæta heilsu hunda á efri árum. Lyfið er gefið daglega í töfluformi. LOY-002 er komið lengra á veg í rannsóknum en LOY-001 & 003 en fyrirtækið er nú að hefja eina stærstu klínísku dýralækna-rannsókn sinnar tegundar. Rannsóknin sem kallast STAY er gerð í samvinnu við fleiri en 50 dýralæknastofur víðs vegar um Bandaríkin og gert er ráð fyrir að hún muni standa í 4 ár og innihaldi þátttöku 1000 hunda. Þó ekki sé um nákvæmlega sama efnasamband að ræða virkar LOY-002 á svipaðan hátt og lyfið Rapamycin sem gefið er líffæraþegum. Lyfið sem er öflugt ónæmisbælandi lyf hefur það hlutverk að koma í veg fyrir að líkaminn hafni ígræddu líffæri. Sýnt hefur verið fram á að notkun lyfsins geti lengt líf tilraunamúsa. Ef FDA veitir skilyrt samþykki fyrir LOY-002 munu dýralæknar í Bandaríkjunum geta ávísað lyfinu til hunda sem uppfylla tilskilin skilyrði strax í byrjun árs 2025. Heimildir: https://loyalfordogs.com/ https://www.nytimes.com/2023/11/28/science/longevity-drugs-dogs.html https://www.lyfja.is/lyfjabokin/lyf/Rapamune Comments are closed.
|
Greinaflokkar:
All
|