Sámur - Hundaræktarfélag Íslands
  • Greinar
  • Fréttir
  • Hundasýningar
  • Meistarar
  • Útgefin blöð

Frábær árangur hjá Maríusi á heimssýningunni!

28/8/2023

 
Picture
Texti: Linda Björk Jónsdóttir
Dagana 24. til 27. ágúst var heimsýningin haldin í Geneva í Sviss. Þar voru skráðir 13.406 hundar sem margir eigendur og sýnendur ferðuðust með langar leiðir til að taka þátt í viðburðinum. Auk hefðbundinnar hundasýningar var keppt í ungum sýnendur þar sem krakkar á aldinum 10-18 ára tóku þátt.
​Í ungum sýnendum skiptir útlit hundsins ekki máli heldur er verið að meta hæfni krakkanna til að sýna hundinn, stilla honum upp, sýna hann á hreyfingu og þekkingu þeirra á tegundinni sem þau sýna. Að auki er verið að skoða samband milli sýnanda og hunds.  

Á hverju ári sendir HRFÍ fulltrúa til að keppa fyrir Íslands hönd og í þetta sinn var það Maríus Þorri Ólason sem sýndi bracco italiano hundinn Fudge með frábærum árangri, en hann var valinn í úrtak 6 hæfileikaríkustu sýnenda í keppninni.
Picture
Krakkarnir sem valdir voru í úrtak þeirra sex hæfileikaríkustu.
Hægt er að horfa upptökur úr stóra hringnum af heimssýningunni á youtube, en hér að neðan má finna upptöku af ungum sýnendum í stóra hringnum.
Við óskum Maríusi til hamingju með frábæran árangur !! ​
Ungir sýnendur byrja á mínútu: 3:08:00 í myndskeiðinu.

Comments are closed.



    Loading...
Picture

Picture

Ritstjórn og umsjón vefsíðu:
Linda Björk Jónsdóttir, [email protected]
Sámur á facebook


Ritnefnd: 
Anna María Ingvarsdóttir,
​Arnfríður Inga Arnmundsdóttir,

Bára J. Oddsdóttir,
Daníel Örn Hinriksson,

Maríanna Gunnarsdóttir.

​Ábyrgðarmaður:
Erna Sigríður Ómarsdóttir
Útgefandi:
​Hundaræktarfélag Íslands
Melabraut 17
220 Hafnafirði
Sími: 588-5255
Vefsíða: www.hrfi.is
Netfang: [email protected]
Tengdar vefsíður:
www.hrfi.is
www..voff.is
​www.hundavefur.is
  • Greinar
  • Fréttir
  • Hundasýningar
  • Meistarar
  • Útgefin blöð