Sámur - Hundaræktarfélag Íslands
  • Greinar
  • Fréttir
  • Hundasýningar
  • Meistarar
  • Útgefin blöð

Veist þú hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að hvolpar fái ættbók frá HRFÍ?

9/4/2025

 
Picture
Íslenskur fjárhundshvolpur. Mynd: Þorsteinn Thorsteinson.
Höf: Linda Björk Jónsdóttir. 
Að mörgu er að huga þegar ákvörðun er tekin um að rækta frá tíkinni á heimilinu. Til þess að hægt sé að láta ættbók frá HRFÍ fylgja hvolpunum á ný heimili er mjög mikilvægt að foreldrar hvolpanna; tíkin og rakkinn, uppfylli öll þau skilyrði sem félagið setur svo félagið geti gefið út ættbók á gotið. Þrátt fyrir að ræktandi gotsins beri ábyrgð á því að hafa þessi atriði í lagi er ekki síður mikilvægt að hvolpakaupendur þekki þær kröfur sem eru til staðar fyrir hverja hundategund, og fari fram á að ræktandinn sýni að öll skilyrðin séu uppfyllt. 

Reglurnar í heild sinni má finna á vefsíðu Hundaræktarfélags Íslands.​
Hvað þarf að gera til að gotið fái ættbók?
Kröfurnar eru mismunandi eftir því um hvaða hundategund ræðir, en þó eru kröfur um heilbrigðisskoðanir mest áberandi í reglugerðinni. Hér er farið yfir þær rannsóknir sem farið er fram á hjá sumum hundategundum.

Röntgenmyndir af mjöðmum og/eða olnbogum:
- fer fram hjá dýralækni. Áður en myndatakan er framkvæmd gefur dýralæknir hundinum slakandi lyf til að hægt sé að röntgenmynda hundinn á meðan hann liggur alveg kyrr. Röntgenmyndirnar eru sendar til útlanda til aflestrar og getur tekið nokkrar vikur að fá niðurstöðu.

Hnéskeljaskoðun:
- fer fram hjá dýralækni þar sem dýralæknir þreifar á hnéskeljunum á meðan hundurinn stendur kyrr, til að meta hvort þær séu á réttum stað og hvort hægt sé að færa þær til. Niðurstaða úr rannsókninni fæst strax að rannsókn lokinni.

Augnskoðun:
- augnskoðanir eru haldnar nokkrum sinnum á ári á vegum HRFÍ. Félagið auglýsir dagsetningar augnskoðanna á heimasíðu sinni og bókaður er tími í gegnum www.hundavefur.is. Dýralæknar með sérmenntun í augnsjúkdómum hunda koma til landsins og skoða hundana.
Þegar mætt er með hund í augnskoðun eru dropar settir í augu hundsins og það tekur dropana nokkrar mínútur að virka. Því næst er farið með hundinn inn í herbergi og ljósin slökkt svo dýralæknir geti skoðað augun með þar til gerðum búnaði. Skoðunin tekur aðeins nokkrar mínútur og niðurstaða úr rannsókninni fæst strax að henni lokinni.

DNA próf:
- fer fram hjá dýralækni hvort sem um ræðir blóð, stroku- eða annars konar sýni. Sýnið er því næst sent til útlanda á rannsóknarstofu og getur tekið nokkrar vikur að fá niðurstöðu.

Hjartaskoðun:
- fer fram hjá dýralækni sem hefur hlotið þjálfun í að greina hjartamurr hjá hjartasérfræðingi. Dýralæknir hlustar hjartað með hlustunarpípu og niðurstaða úr rannsókninni fæst strax að henni lokinni.

Heyrnarmæling:
- fer fram hjá dýralækni með BAER tæki sem notað er til að nema viðbrögð frá eyrum til heila. Hljóð eru spiluð og nemar sem tengdir eru á sérstaka staði á höfuð hundsins nema taugaboð frá eyrum. Rannsóknin tekur um 10 til 15 mínútur, er alveg sársaukalaus og hundurinn er vakandi á meðan. Niðurstaða fæst strax að rannsókn lokinni.

BOAS öndunarfærapróf:
- fer fram hjá dýralækni sem hefur fengið sérstaka þjálfun í að meta heilbrigði öndunarfæra hjá hundum. Dýralæknir hlustar hundinn með hlustunarpípu meðan hann er rólegur og í hvíld, síðan er hundurinn hvattur til að hreyfa sig rösklega í um 3 mínútur, það getur t.d. verið hlaup eða rösk ganga. Því næst hlustar dýralæknirinn hundinn aftur með hlustunarpípunni og metur hann eftir nákvæmum kvarða. Niðurstaða fæst strax að rannsókn lokinni.
 
Mikilvægt er að niðurstöður úr þeim heilbrigðisskoðunum sem krafist eru, séu kunnar fyrir pörun. Það er þó ekki aðeins nóg að niðurstaða sé kunn, því stundum eru gerðar kröfur um ákveðna niðurstöðu, til dæmis má ekki rækta frá hundum sem fá mjaðmaniðurstöðuna „E“ eða eru greindir með arfgenga vaxandi sjónrýrnun (PRA) í augnskoðun.

Hvað ef skilyrði um skráningu hvolpa í ættbók eru ekki uppfyllt?
Ef niðurstöður rannsókna liggja ekki fyrir getur félagið ekki gefið út ættbók á gotið. Ef það verður til dæmis got hjá ræktanda sem ekki var búinn að láta framkvæma allar heilbrigðisskoðanir sem krafist eru hjá hundategundinni, getur ræktandinn bætt úr því og látið heilbrigðis-skoða hundana og sótt um ættbók á gotið, ef niðurstöður rannsókna reynast á þann veg að þær uppfylli reglur um skráningu í ættbók. Ræktandinn má þó vænta bréfs frá siðanefnd félagsins. Siðanefnd hefur meðal annars það hlutverk að leysa úr ágreiningi um háttsemi sem kann að varða við lög og reglur félagsins og úrskurða í málum þeirra aðila sem taldir eru hafa brotið gegn reglum og markmiðum félagsins.

Ræktendur, hvolpakaupendur og aðrir velunnarar ættu því að kynna sér vel reglur fyrir sína hundategund og vera duglegir að fræða aðra, til að hægt sé að ættbókafæra öll þau got sem líta dagsins ljós.  

Tenglar:
Reglur um skráningu í ættbók. (apríl 2025)
Málsmeðferðarreglur siðanefndar. ​(apríl 2025)

Comments are closed.

    Greinaflokkar:

    All
    Eldri Greinar
    Hundaheilsa
    Hundalíf
    Hundarækt
    Hundaþjálfun
    Tegundakynningar
    Unga Fólkið


Picture

Picture

Ritstjórn og umsjón vefsíðu:
Linda Björk Jónsdóttir, [email protected]
Sámur á facebook


Ritnefnd: 
Anna María Ingvarsdóttir,
​Arnfríður Inga Arnmundsdóttir,

Bára J. Oddsdóttir,
Daníel Örn Hinriksson,

Maríanna Gunnarsdóttir.

​Ábyrgðarmaður:
Erna Sigríður Ómarsdóttir
Útgefandi:
​Hundaræktarfélag Íslands
Melabraut 17
220 Hafnafirði
Sími: 588-5255
Vefsíða: www.hrfi.is
Netfang: [email protected]
Tengdar vefsíður:
www.hrfi.is
www..voff.is
​www.hundavefur.is
  • Greinar
  • Fréttir
  • Hundasýningar
  • Meistarar
  • Útgefin blöð