Sámur - Hundaræktarfélag Íslands
  • Greinar
  • Fréttir
  • Hundasýningar
  • Meistarar
  • Útgefin blöð

Úr fortíðinni - Barry til bjargar

1/6/2019

 
Picture
Höfundur: Anja Björg Kristinsdóttir // Mynd: Anatoliy Anohin af Sankte-ice just a midnight magic 
Löngu áður en kvikmyndin um Beethoven birtist á hvíta tjaldinu voru St.Bernards hundar vinsælir af allt annarri ástæðu; að bjarga mannslífum. Hundurinn Barry, sem uppi var á árunum 1800–1814, er þekktasti björgunarhundur sinnar tegundar. Þessir merkilegu hundar voru þó aðeins léttari á sér heldur en tegundin er í dag og vógu þeir um rúmlega 40 kg. Barry og fleiri hundar af hans kyni, störfuðu sem björgunarhundar í fjöllunum milli Sviss og Ítalíu, aðallega í því snjómikla og hættulega Sankti Bernard skarði, sem liggur í gegnum Alpana. Þaðan kemur einmitt nafn tegundarinnar. 
Munkar sem þar bjuggu í miklu klaustri, með stórri sjúkraálmu fyrir ferðalanga sem lentu í háska, var staðsett 2.500 metrum yfir sjávarmáli. Það voru þeir sem héldu þessa hunda sér til aðstoðar við björgunarstörf í þessum erfiðu aðstæðum eftir tíða snjóstorma sem þar dundu yfir. Í yfir 200 ár voru það rúmlega 2000 manns sem áttu líf sitt að launa þessum dugmiklu hundum sem með lyktarskyni sínu, ratvísi og sínum þykka feld, sem varði ekki bara þá sjálfa frá hinum mikla kulda, heldur fólk sem upp að þeim hjúfraði sig. Oftast voru þetta hermenn en einnig fullorðnir og börn sem lentu í hremmingum á leið sinni um skarðið.

​Hundarnir lögðu af stað út í öll veður, mikinn kulda og stundum storm þar sem þeir leituðu um í fjöllunum eftir fólki. Oft fundu hundarnir niðurgrafið fólk í snjónum. Þeir grófu upp manneskjur og annar hundurinn lagðist við hlið hennar og hélt þannig á henni hita á meðan hinn fór til munkanna sem voru með í för og lét vita. Hundarnir ruddu líka snjóstíga með því að ganga á undan húsbændum sínum í leitarferðum sínum. Sögur eru um það að hundarnir hafi haft kút um hálsinn sem innihélt líkjör til að verma þá sem þeir fundu, en engar áreiðanlegar heimildir eru þó fyrir því.

Barry bjargaði yfir 40 mannslífum á lífsleið sinni, enda oft nefndur bjargvætturinn Barry. Eitt frægasta björgunarafrek Barry var þegar hann bjargaði ungum dreng frá því að verða úti. Barry fann drenginn sofandi í íshelli, kaldann og hrakinn. Eftir að hafa hitað drenginn með því að sleikja hann og verma með líkamshita sínum og þykkum feldi sínum, bar hann drenginn á bakinu til baka í klaustrið. Drengurinn lifði hremmingarnar af þökk sé Barry.

​Skrifaðar hafa verið bækur og myndir hafa verið gerðar um hinn fræga Barry, bjargvættinn úr ölpunum. Í Bern, höfuðborg Sviss, er meira að segja mjög frægt safn um Barry og hina St. Bernards hundana og munkana sem héldu hundana og sögu þeirra í aldanna rás. Þar er skúlptúr af Barry í fullri stærð, eftirlíking af beinagrindum hundanna, myndir, sögur og annar fróðleikur. Safnið heitir einfaldlega ,,BARRY, The legendary St. Bernard Dog.” Áður en safnið kom til sögunnar var eftirlíking af Barry í raunstærð til sýnis á náttúrulífssafninu í Bern frá árinu 1923.

Comments are closed.

    Greinaflokkar:

    All
    Eldri Greinar
    Hundaheilsa
    Hundalíf
    Hundarækt
    Hundaþjálfun
    Tegundakynningar
    Unga Fólkið


Picture

Picture

Ritstjórn og umsjón vefsíðu:
Linda Björk Jónsdóttir, [email protected]
Sámur á facebook


Ritnefnd: 
Anna María Ingvarsdóttir,
​Arnfríður Inga Arnmundsdóttir,

Bára J. Oddsdóttir,
Daníel Örn Hinriksson,

Maríanna Gunnarsdóttir.

​Ábyrgðarmaður:
Erna Sigríður Ómarsdóttir
Útgefandi:
​Hundaræktarfélag Íslands
Melabraut 17
220 Hafnafirði
Sími: 588-5255
Vefsíða: www.hrfi.is
Netfang: [email protected]
Tengdar vefsíður:
www.hrfi.is
www..voff.is
​www.hundavefur.is
  • Greinar
  • Fréttir
  • Hundasýningar
  • Meistarar
  • Útgefin blöð