Höfundur: Anja Björg Kristinsdóttir. // Birtist í 2. tbl. 52. árg. desember 2019. Fyrsta hundasýningin
Árið 1859 var fyrsta opinbera hundasýningin haldin í Newcastle á Englandi. Reyndar var þetta stór alifuglasýning og þar var ákveðið að bæta við hundasýningu til þess að reyna að fá fleira fólk á staðinn. Eingöngu voru veiðihundar af setter og pointer kyni sem sóttu þessa sýningu, um 50 talsins. Í verðlaun fyrir bestu hundana voru skotveiðibyssur. Engir staðlar um tegundirnar voru þó til staðar á þessum tíma. Sýningin vakti mikla athygli og í kjölfarið fylgdu svo nokkrar álíka sýningar fyrir selskapshunda og aðrar tegundir veiðihunda. Það var svo árið 1879 í Birmingham á Englandi að formlega var stofnað fyrsta hundaræktarfélagið sem gaf út ættbækur og vann eftir reglugerð um ræktun hunda. Önnur lönd fylgdu svo í kjölfarið og var það árið 1881 að Frakkland stofnaði sitt hundaræktarfélag og árið 1884 leit Ameríski ræktunarklúbburinn dagsins ljós. Í Chelsea á Englandi árið 1863 var fyrsta hundasýningin haldin þar sem farið var eftir reglum og stöðlum Breska hundaræktarfélagsins. Ein þekktasta hundasýning heims, Crufts, var haldin fyrst árið 1863, og hefur verið haldin árlega síðan þá og er mörgum Íslendingum að góðu kunn. Hinum megin við hafið var það svo önnur þekkt hundasýning sem haldin hefur verið árlega síðan 1877, það er Westminster hundasýningin í New York. Hér á Íslandi hélt Hundaræktarfélagið sína fyrstu hundasýningu í Eden í Hveragerði árið 1973. Sýningin vakti mikla athygli, aðsókn var mikil og færri komust að en vildu. Alls voru skráðir 60 hundar á sýninguna, þá aðallega íslenskir fjárhundar. Dómari á þessari fyrstu sýningu var Jean Lanning frá Englandi og þurfti hún að fá undanþágu til að dæma hér þar sem sýningin var ekki alþjóðlega viðurkennd. Ljóst er að mikið vatn hefur runnið til sjávar í þessum málum bæði hérlendis og erlendis, en við hér á litla Íslandi megum vera stolt af sýningum HRFÍ sem eru í dag á pari við það sem best gerist í heiminum. Comments are closed.
|
Greinaflokkar:
All
|