|
Höf: Linda Björk Jónsdóttir // Myndir í eigu Evelyn Ýrar. Hjónin Evelyn Ýr Kuhne og Sveinn Guðmundsson ásamt Júlíusi Guðna syni þeirra búa á Lýtingsstöðum í Skagafirði. Undanfarin 25 ár hafa þau rekið eigið ferðarþjónustufyrirtæki á bænum og tekið bæði á móti hópum og einstaklingum, þar sem hægt er að fara á hestbak og skoðað torfbæ sem þau létu útbúa. Torfbærinn er gamaldags hesthús og skemma þar sem hægt er að skoða ýmislegt sem tengist landbúnaði, til dæmis gömul reiðtygi og annað áhugavert sem gestir geta skoðað á eigin vegum með hljóðleiðsögn. Árið 2019 fengu þau sinn fyrsta íslenska fjárhund, hann Sóma eða Reykjavalla Íslands Sóma eins og hann heitir í ættbók, og fór þá hugurinn á flug og þá sérstaklega hvað þessi séríslenska hundategund væri merkileg. Sómi hafði þá vakið mikinn áhuga hjá gestum sem höfðu komið að skoða torfbæinn og höfðu margir þeirra mikinn áhuga á að vita meira um Íslenska fjárhundinn. Núna eru íslensku fjárhundarnir orðnir þrír og standa sig með miklu prýði sem móttökufulltrúar á bænum. Evelyn sem er menntaður menningarfræðingur og leiðsögumaður hafði aldrei fyrr litið á tegundina sem hluta af menningararfi Íslands, og var það þá sem hugmyndin kviknaði um að nýta þjóðarhundinn til að miðla íslenskum menningararfi og opna sögusetur Íslenska fjárhundsins. Næsta tvö og hálft ár fór í að byggja upp tengslanet, byggja hús fyrir sýninguna og safna upplýsingum meðal annars úr bókum og greinum ásamt því að safna saman myndum af íslenskum hundum í gegnum tíðina. Fjölskyldan er þakklát þeim sem lögðu hönd á plóg og hjálpuðu til við vinnuna og fyrir þá styrki sem þau fengu úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands vestra, Menningarsjóði Kaupfélags Skagfirðinga og úr sjóðnum Hvata hjá Menningar- og viðskiptaráðuneytinu en án styrkjanna hefði verkefnið aldrei orðið að veruleika. Laugardaginn 24. maí 2025 héldu þau opnunarhátíð þar sem fólki var boðið að koma og fagna þessum stóra áfanga með þeim og má segja að vel hafi verið mætt á viðburðinn. Þau vonast til að sjá bæði íslenska og erlenda ferðamenn kynna sér sögu þjóðarhundsins og verður setrið opið hjá þeim daglega frá maí til september frá klukkan 09:00 til 18:00 en að auki geta þau tekið á móti fólki á öðrum tímum eftir samkomulagi. Comments are closed.
|
Greinaflokkar:
All
|