Sámur - Hundaræktarfélag Íslands
  • Greinar
  • Fréttir
  • Hundasýningar
  • Meistarar
  • Útgefin blöð

Golden retriever

11/10/2024

 
Picture
Höfundur: Bjarnheiður Erlendsdóttir. // Veitt aðstoð: Svava Guðjónsdóttir og Sunna Birna Helgadóttir. // Myndir: Ulrika Zetterfeldt. // Greinin birtist í 2. tbl. 52. árg. 2019.
Uppruni  
Golden retriever er sérstakt ræktunarafbrigði og er upprunnið á Skotlandi um miðja 19. öld. ​Tegundin var upphaflega ræktuð úr tveimur þekktum hundakynjum, tweed water spaniel og yellow wavy-coated retriever. Kringum árið 1835 hóf skotinn Sir Dudley Marjoriebanks af kappsemi að reyna að rækta fullkomið afbrigði af veiðihundum. Við þessa ræktun hans varð til tegundin golden retriever. Skotveiðimenn notuðu golden retriever því að þeir hentuðu vel til að sækja vatnafugla því þykkur, hlýr, tvöfaldur feldurinn hentaði vel til að vaða í köldum vötnum skosku hálandanna. 
Þegar líða fór á 20. öldina jukust vinsældir tegundarinnar mjög og hafa sjaldan eða aldrei verið meiri en einmitt núna og þá einkum sem gæludýr. Fyrir utan það að vera notaðir til veiða þá eru þeir þó einnig notaðir sem vinnuhundar og blindrahundar og eru mikið notaðir sem slíkir. Hundarnir hafa sérlega mikla ánægju af veiðihundaþjálfun og að sækja hluti sem kastað er og það er á meðal þess skemmtilegasta sem þeir gera. 
Picture
Útlit og umhirða 
Golden retriever er í ýmsum blæbrigðum af rjómalit, gullnum eða gulum lit en ekki má hann vera rauður eða rauðleitur (mahogany). Leyfilegt er að þeir hafi fáein hvít hár á bringu. Hvítt afbrigði (í raun bara mjög fölur litur) nýtur mikilla vinsælda og er nú orðið samþykkt í retriever ræktun. Feldurinn á að vera sléttur eða liðaður og hafa þykkan undirfeld sem hrindir frá sér vatni. Ekki er mikil feldhirða hjá golden retriever hundum, þeir fara úr hárum en hægt er að halda því í skefjum með því að bursta reglulega í gegnum feldinn. Gott og vandað fóður hjálpar líka til við að minnka feldlos. Ekki er mikil þörf á sápuböðun. 
Golden retriever samsvarar sér vel í byggingu, er kröftugur en má þó ekki vera of grófur (klossaður). Hreyfingar eru léttar og frjálslegar. Ennislögun er breið og ennisbrún vel afmörkuð. Trýni er kröftugt. Augu dökk og augnsvipur vinalegur og mildur. Eyru meðalstór. Háls vel vöðvaður. Brjóstkassi djúpur og rúmur. Afturfótabeygjur (vinklar) djúpar. Hann má ekki bera skottið of hátt. Feldur sléttur eða liðaður og fætur eiga að skarta síðum feldi (fánum). 
Líftími þeirra er um 11-12 ár. ​
Picture
Skapgerð og tilgangur 
Vingjarnlegt viðmót, vatnssækni og veiðieðli sem og hlýr feldur og góð líkamsbygging voru þeir eiginleikar sem Marjoriebanks sóttist eftir í sinni nýju ræktun. Þetta eru þeir eiginleikar sem hundar af tegundarafbrigðinu golden retriever hafa mjög sterkt í eðli sínu. Goldeninn er kjörinn fjölskylduhundur, barnvænn og vinur allra, einnig annarra gæludýra. Hann er mjög kraftmikill og fyrirferðamikill og þarf mikla hreyfingu og þjálfun í uppeldinu til að aðlagast sem best fjölskyldu sinni og samfélagi. Golden retriever er á topp 10 lista yfir gáfuðustu hundategundir heims. 

Ræktunarstefna íslensku Retrieverdeildarinnar: (desember 2019)
• Að ræktunardýr séu mjaðma- og olnbogamynduð og greining sé A eða B (HD/ED FRI). Að dýr séu augnskoðuð og augnskoðunarvottorð sé ekki eldra en 18 mánaða. Þau beri ekki arfgenga augnsjúkdóma. 

• Að ræktunardýr séu DNA prófuð fyrir DNA/GR_PRA1 og DNA/GR_PRA2 og greiningin sé Normal/Clear (N/C) eða séu sannanlega arfhrein frá foreldrum, Normal/Clear by parentage. 

• Að ræktunardýr séu sýnd a.m.k. einu sinni á sýningu HRFÍ eða hjá öðrum félögum viðurkenndum af FCI og náð a.m.k. Good í Opnum flokki eða Vinnuhundaflokki. 

OG/EÐA 

• að ræktunardýr séu þátttakendur í veiðiprófi hjá Retrieverdeild HRFÍ eða hjá öðrum retrieverklúbbum innan félaga viðurkenndum af FCI og náð a.m.k. 3. einkunn í Opnum flokki. 
​

Golden retriever hundar flokkast undir tegundarhóp 8, Retrievers – Flushing dogs – Water dogs, Sækjandi - vatnshundar. 
 
Bestu þakkir til Sunnu Birnu Helgadóttur og Svövu Guðjónsdóttur fyrir veitta aðstoð. 
 
Picture
Heimildir: 
https://www.retriever.is/raektunarmarkmid-retrieverdeildar/ 
https://www.retriever.is/wp-content/uploads/2018/03/GoldenKynning.pdf 
https://www.visindavefur.is/svar.php?id=1961 
https://shopus.furbo.com/blogs/knowledge/golden-retrievers-health-problems 
https://sites.google.com/site/goldenretrievericeland/frettir 
https://thehappypuppysite.com/white-golden-retriever/ 

Comments are closed.

    Greinaflokkar:

    All
    Eldri Greinar
    Hundaheilsa
    Hundalíf
    Hundarækt
    Hundaþjálfun
    Tegundakynningar
    Unga Fólkið


Picture

Picture

Ritstjórn og umsjón vefsíðu:
Linda Björk Jónsdóttir, [email protected]
Sámur á facebook


Ritnefnd: 
Anna María Ingvarsdóttir,
​Arnfríður Inga Arnmundsdóttir,

Bára J. Oddsdóttir,
Daníel Örn Hinriksson,

Maríanna Gunnarsdóttir.

​Ábyrgðarmaður:
Erna Sigríður Ómarsdóttir
Útgefandi:
​Hundaræktarfélag Íslands
Melabraut 17
220 Hafnafirði
Sími: 588-5255
Vefsíða: www.hrfi.is
Netfang: [email protected]
Tengdar vefsíður:
www.hrfi.is
www..voff.is
​www.hundavefur.is
  • Greinar
  • Fréttir
  • Hundasýningar
  • Meistarar
  • Útgefin blöð