|
Höfundur: Sunna Birna Helgadóttir // Myndir: Ágúst Ágústsson, Hafdís Jóna Þórarinsdóttir og Auður Sif Sigurgeirsdóttir Sumarið er frábær tími til þess að fara út að ganga með hundinum sínum. Þá er tilvalið að prófa nýja staði, stoppa og leika við hundinn. Að kenna hundi í gegnum leik er mjög áhrifarík aðferð þar sem hundar eru oftast fljótir að skilja til hvers er ætlast af þeim. Leikir og þrautir í göngutúr efla sjálfstraust og sjálfstjórn hunda. Að leika við hundinn sinn eykur gleði og styrkir samband manns og hunds. Hundar þurfa líka tilbreytingu Göngutúr með hundinum á að vera skemmtileg stund sem hundur og eigandi eiga að nota til þess að tengjast betur og njóta saman. Að ganga með hund í taumi sömu leið á hverjum degi getur orðið leiðigjarnt fyrir bæði hund og mann. Að brjóta upp göngutúra með leik eða nýjum stöðum getur veitt hundi mikla gleði og losað um uppsafnaða orku. Hreyfing við hæfi er nauðsynleg og öllum hundum finnst gaman að fara út hvort sem það er laus eða í taumi. Hundar hafa mjög misjafna hreyfiþörf sem ræðst af stærð og aldri. Hvolpar og eldri hundar þurfa styttri og yfirvegaðri hreyfingu en hundar á miðjum aldri. Nánast allir hundar geta leikið eða leyst þrautir. Ef hundur sýnir ekki áhuga á leik þá er um að gera að prófa eitthvað nýtt og sjá hvað höfðar til hundsins. Það þarf samt að hafa í huga aldur hundsins og passa að leikurinn henti líkamlegum og andlegum þroska hans. Ungir hundar af seinþroska tegundum ættu t.d. ekki að hoppa mikið upp á eitthvað eða niður og það er einnig talið að endurtekin hlaup á eftir bolta geti haft neikvæð áhrif á olnboga og mjaðmir þessara tegunda. Hreyfing og útivera gagnast hundum ekki bara líkamlega heldur örvar líka skynbrögðin og sérstaklega lyktarskynið þegar það er farið á nýja staði með nýrri lykt. Robert Killick segir í bók sinni Dog Showing að leikur og frjáls hlaup séu nauðsynleg öllum hundategundum stórum sem smáum. Hreyfing styrkir sinar og vöðva sem stjórna liðunum og eykur blóðfæði um líkamann. Þegar hundar eru úti og upplifa nýjar aðstæður og staði þá örvast hugurinn líka og sjálfsöryggið eykst. Hreyfing og leikur er undirstaða góðs sambands milli manns og hunds og góðrar frammistöðu í hvaða keppni sem er en einnig grundvöllur að hamingjusömu heimilislífi. Hvað viljum við fá út úr göngutúrnum? Áður en það er farið út í göngutúr er gott að vera búinn að ákveða hvað við og hundurinn viljum fá út úr göngutúrnum: Viljum við losa um líkamlega orku og byggja upp vöðva? Viljum við nota gönguna til þess að tengjast betur hundinum okkar með þjálfun eða auka andlegt heilbrigði eða hugsanlega umhverfisþjálfa? Lausaganga úti í náttúrunni er frábær fyrir hunda og menn til þess að slaka á og njóta þar sem hundurinn getur þefað og rúllað sér upp úr öllu mis spennandi sem á vegi hans verður. Í lausagöngu í misjöfnu landslagi þjálfar hundurinn líka fleiri vöðva og byggir upp líkamlegt form. Það er tilvalið að brjóta göngutúr upp með leik eða stuttri hlýðniþjálfun. Það er hægt að fara í leiki eða gera þrautir hvar sem er og hvort sem hundurinn er laus eða í taumi. Það er mjög gott að hafa langan taum t.d. 10 m. í vasanum sem hægt er að skella á hundinn ef það þarf meira rými en stuttur taumur býður upp á. Í leik er hægt að efla grunn að einfaldri hlýðni eins og að sitja og að bíða og einnig innkalli. Ef það á t.d. að fela dót/nammi eða fara í feluleik er gott að láta hundinn setjast og bíða og gefa honum svo leyfi til þess að koma þegar maður er tilbúinn. Leikir og þrautir hjálpa til við að bæta innkall í lausagöngu svo um munar. Í lausagöngu verður hundurinn meira vakandi fyrir því hvað þú ert að gera og hefur meiri áhuga á að vera nálægt til þess að missa ekki af möguleikanum á því að leika. Það er gott að vera alltaf með leikfang eða nammi í vasanum og passa upp á að leika og þjálfa á mismundandi stöðum þannig að hundurinn læri ekki að það sé bara einhver einn staður þar sem er leikið á heldur bíði í eftirvæntingu. Nokkrar hugmyndir að leik og skemmtun fyrir göngutúra:
Verum á varðbergi og virðum þolmörk hundsins Hundar hafa oftast gaman af því að hitta aðra hunda. Hundar sem fá að leika lausir við aðra hunda læra mikið í samskiptum og sjálfsstjórn. Það er samt alltaf gott að vera á varðbergi til að geta fyrirbyggt að einhver leiðindi skapist þegar nokkrir hundar koma saman sem hugsanlega þekkjast ekkert. Að geta leikið við hundinn sinn er ekki bara skemmtilegt heldur getur nýst við margar kringumstæður t.d. ef hundur bregst almennt illa við ókunnugum hundum þá er hægt að afvegaleiða hundinn með leik þangað til ókunnugi hundurinn er farinn framhjá. Að geta leikið aðeins við hundinn sinn á hundasýningum er góð leið til þess að hundurinn verði líflegri í hringnum og finnist almennt skemmtilegt á sýningum. Leikir og þrautir efla sjálfstraust og auka lífsgæði. Það þarf bara alltaf að hafa í huga að hrósa vel og verðlauna hundinn og gera ekki það sama í of langan tíma, 10 mínútur er oft fínn tími til þess að miða við. Fyrir þá sem hafa áhuga á að prófa að leika við hundinn sinn en vita ekki hvernig þeir eiga að byrja eða vantar nýjar hugmyndir þá er bókin FUN & GAMES FOR A SMARTER DOG eftir Sophie Collins frábær bók sem kennir manni skref fyrir skref hvernig á að leika ýmsa leiki, gera þrautir og kenna trix svo fátt eitt sé nefnt. Að kenna og vinna með hundi er eitthvað sem klárast aldrei. Það er alltaf hægt að skemmta sér með hundinum sínum með því að leika við hann eða æfa æfingar hvar og hvenær sem er. Heimildir:
Collins, S. (2017). Fun and Games for a Smarter Dog. London : Ivy Press. Heiðrún Villa. (2012). Leyndarmál hundaþjálfunar. Akureyri : Bókaútgáfan Tindur. Killick, R. (2003). Dog Showing. London : Collins. Stillwell, V. (2017). The Secret Language of Dogs. London : Hamlyn. That Dog Geek Facebook. https://www.facebook.com/ThatDogGeek/photos/a.1867543620139762/2435637646663687/?type=3&theater https://healthypets.mercola.com/sites/healthypets/archive/2019/04/01/games-to-play-with-your-dog.aspx?utm_source=petsnl&utm_medium=email&utm_content=art1&utm_campaign=20190401Z1&et_cid=DM278145&et_rid=581756176 Comments are closed.
|
Greinaflokkar:
All
|







