|
Umsjón: Ásta María Karlsdóttir // Höfundur texta: Jóhanna Reykjalín, birt með góðfúslegu leyfi höfundar Myndir: [www.pintrest.com](http://www.pintrest.com), Pétur Alan Guðmundsson Hérna eru hugmyndir að nokkrum leikjum sem efla sjálfstraust hundsins. Það er mikilvægt að trufla hundinn ekki í leiknum því það getur sett hann út af laginu. Eins er mikilvægt að finna fljótt út hvenær tími er kominn til að aðstoða hundinn sem virðist vera strand í verkefninu. Aðstoðin má ekki koma það fljótt að hundurinn læri það að gefast upp – því þá fái hann hjálp, en hún má heldur ekki koma það seint að hundurinn sé búinn að gefast upp, missa áhugann og farinn að snúa sér að einhverju öðru. Best er að gefa honum verkefni og ganga burt en fylgjast með úr fjarlægð. Ef þú síðan ákveður að grípa inn í og aðstoða er mikilvægt að spyrja hundinn hvort hann vilji aðstoð og tala við hann ljúfum tón meðan á aðstoðinni stendur. Gættu þess þó að leysa ekki verkefnið fyrir hann heldur eingöngu einfalda það. Mikilvægt er að krefjast ekki of mikils af hundinum í upphafi, eins og sagt er á ensku „set him up for success“. Góða skemmtun! Hugmyndir að heilaþrautum fyrir hunda
Tómur pakki utan af morgunkorni og vel lyktandi nammi eins og t.d. pylsur, lifrarpylsa eða harðfiskur Stingdu namminu einfaldlega inn í pakkann, hristu hann aðeins til og smelltu honum á gólfið. Hundurinn skemmtir sér svo og æfir hugann meðan hann reynir að ná namminu út. Þú gætir þurft að aðstoða hann ef illa gengur. Stundum getur þurft að hafa kassann opinn til að byrja með eða jafnvel skera ofan af honum svo hann sé ekki eins djúpur. Þegar hundurinn er farinn að mastera þennan leik er upplagt að setja kassa ofan í kassann. Gamall skókassi og vellyktandi nammi Hvolfa kassanum yfir nammið og þá þarf hundurinn heldur betur að hafa fyrir því að ná namminu undan kassanum! Það er líka hægt að setja nammi ofan í skókassann og loka – það getur reynst hundinum mikil þraut. Tóm plastflaska Nammi eða fóður sett í flöskuna og hún sett á gólfið fyrir hundinn. Hann þarf að hafa fyrir því að rúlla flöskunni til og frá til þess að ná að fá nammið/ fóðrið til þess að detta út úr flöskunni. Kassaleikurinn Pappakassi sem hundurinn getur auðveldlega stigið í og úr. Settu nammi ofan í kassann (eða uppáhalds leikfang hundsins) og hvettu hann til að stíga ofan í kassann að sækja nammið/dótið. Stundum er gott að halda við kassann svo hann fari ekki „á flug” því það getur hrætt suma hunda. Einnig getur verið gott að setja kassann fyrst á hlið svo hundurinn stígi þannig inn í hann áður en þið ætlist til þess að hann stökkvi eða stígi ofan í hann. Töframaðurinn Taktu 2-3 plastglös og settu nammi undir eitt þeirra og ruglaðu þeim svo eins og töframaður áður en þú raðar þeim upp. Þar sem nammi lyktin nuddaðist í gólfið meðan þú ruglaðir glösunum getur reynst snúið fyrir hundinn að finna út undir hvaða glasi nammið er. Svo þarf hann auðvitað að snúa því við. Sama leik er hægt að leika við stærri hunda með því að nota plastbox eða skálar. Að rekja slóð Þegar kemur að matartíma hjá hundinum getur þú búið til hálfgerða þrautabraut fyrir hundinn þinn. Mjög sniðugt er að raða matnum í línu eins og Hans og Gréta gerðu. Endastöðin getur verið matardallurinn eða hrúga af gómsætu nammi! Ef hundurinn þinn er sólginn í þurrmatinn sinn – hví ekki að henda einni lúku af mat út á stétt eða lóð og leyfa honum að dunda sér við að þefa upp fóðrið. Ef hann er ekki hrifinn af matnum sínum er gott að skera niður pylsu og ost í örsmáa bita og dreifa utandyra, eða innandyra og öruggt er að hver einasti biti mun hverfa. Til að byrja með er mikilvægt að setja ekki of miklar kröfur á hundinn. Ef hann er ekki vanur því að prófa sig áfram á eigin spýtur getur tekið smá tíma fyrir hann að kveikja á sér. Vertu þolinmóð/ur og óspör/óspar á nammið. Ekki trufla hann, leyfðu honum að gera hlutina á eigin hraða og einfaldaðu leikinn ef hundurinn virðist ekki vera að átta sig á því hvað er í gangi. Nammitré Flestir hundar eru vanir því að fá útrás fyrir orkuna með því að hlaupa eða elta bolta. Þetta er gott og blessað en stundum getur of mikil hreyfing orðið til þess að hundurinn æsist upp, tekur rangar ákvarðanir og hagar sér illa einfaldlega af því að hann ræður ekki við sig. Að gefa hundum annars konar afþreyingu og verkefni getur reynst þeim vel og þessi æfing er róandi og skemmtileg fyrir þá. Nammitré er upplagt að gera fyrir hundinn til dæmis í göngutúrum en í því felst reyndar umtalsverð kyrrstaða fyrir ykkur, svo endilega klæðið ykkur vel! Gangið með hann í slökum taum (eftir bestu getu – athugið taumlengdina!) að góðu, opnu svæði. Finnið ykkur gott tré, bindið hann við það og gangið síðan aðeins frá honum að öðru tré (gætið þess þó að engin umferð sé í kring og að hann sé rólegur meðan þið fjarlægist). Til að byrja með getur verið gott að velja bara tréð við hliðina á því sem hann er bundinn við en smám saman getið þið gert þetta erfiðara fyrir hann með því að þið gangið lengra frá og hann þurfi að leita uppi nammitréð. Þegar komið er að trénu sem þið hafið valið sem „nammitré“ skuluð þið taka upp nammipokann og klína nammi utan á tréð, bæði uppi og niðri – fram á greinar á jörðina í kring. Ákjósanlegast er að nota lifrarpylsu þar sem hún festist auðveldlega við tréð. Sækið síðan hundinn en ef hann er mjög æstur skuluð þið snúa hliðinni að honum. Ef hann hoppar upp á afturfæturnar skuluð þið snúa bakinu í hann strax og jafnvel taka nokkur skref til baka. Ekki ganga til hans nema hann sitji rólegur við tréð. Losið hann og leyfið honum að hlaupa af stað (örugglega í hendingskasti) að trénu. Þegar komið er að því mun hann strax róast og byrja að þefa uppi allt nammið. Smám saman er upplagt að reyna að fá hann til að vera rólegri og þefa sig í áttina að trénu en ekki bara hlaupa á harða spretti beint að því. Nammitréð er til í mörgum mismunandi útgáfum svo þið skuluð endilega nota ímyndunaraflið og prófa ykkur áfram. Múffuform úr áli Hægt er að setja nammibita í botninn á múffuformi úr áli og setja svo tennisbolta eða dót sem er við hendina hverju sinni yfir nammibitann. Hundurinn á svo að finna út úr því hvernig hann á að ná að komast í nammið. Kong og aðrir leikir Mjög sniðugt er að fjárfesta í leikfangi sem heitir KONG. Hægt er að fylla það með ýmsu góðgæti fyrir hundinn. Eins er hægt að fá sænsk leikföng frá Nina Ottosen sem byggja á heilaþrautum fyrir hunda. Hvoru tveggja er mjög gaman að eiga fyrir hundinn. Comments are closed.
|
Greinaflokkar:
All
|






