Sámur - Hundaræktarfélag Íslands
  • Greinar
  • Fréttir
  • Hundasýningar
  • Meistarar
  • Útgefin blöð

Aðalfundur 2025

30/4/2025

 
Picture
Stjórn félagsins skipa þær (f.v.) Elín Edda Alexandersdóttir, Anna Þórunn Björnsdóttir, Erna Sigríður Ómarsdóttir, Anna María Gunnarsdóttir, Klara Símardóttir og María Björg Tamimi.
Höf & myndir: Linda Björk Jónsdóttir. 
Aðalfundur Hundaræktarfélags Íslands var haldinn þriðjudaginn 29. apríl 2025 í húsnæði félagsins að Melabraut í Hafnafirði. Góð mæting var á fundinn. Stjórn félagsins og framkvæmdastjóri fóru meðal annars yfir verkefni og viðburði síðasta starfsárs þar sem mátti sjá að félagið er í miklum blóma og fjárhagsstaðan góð. Aðalfundi er þó ekki lokið en vegna lagabreytingatillaga um málefni siðanefndar var ákveðið að fresta þeim lið svo laganefnd félagsins hafi tækifæri á að skoða málið gaumgæfilega. Stefnt er á að halda aukafund föstudaginn 29. ágúst 2025. Málefni fundarins verður kynnt betur síðar.

Stjórnarkjör voru á sínum stað en í ár voru þrír einstaklingar sem buðu fram krafta sína til formanns, það voru þau Guðbjörg Guðmundsdóttir, Erna Sigríður Ómarsdóttir og Sigurður Valdimar Steinþórsson. Erna Sigríður sitjandi formaður var kjörin formaður næstu tveggja ára með 367 atkvæði af 552 atkvæðum (66,5%).
​
Kosnir voru tveir einstaklingar í stjórn til tveggja ára og voru það þau Anna María Gunnarsdóttir, Klara Símardóttir og Sigurður Valdimar Steinþórsson sem buðu sig fram. Anna María og Klara náðu kjöri. Einn einstaklingur var kosinn í varastjórn og voru það þau María Björg Tamimi og Sigurður Valdimar Steinþórsson sem buðu sig fram, María Björg náði kjöri.

Ný siðanefnd var kosin á fundinum en góður hópur bauð fram krafta sína og þurfti að kjósa í nefndina.

Undir liðnum önnur mál var erindi frá chihuahua deild þar sem óskað var eftir því að deildin yrði lögð niður í núverandi mynd og myndi sameinast smáhundadeild. Fundurinn samþykkti erindið.

Guðrúnarverðlaunin voru veitt í fyrsta sinn en það voru þær Auður Valgeirsdóttir og María Tómasdóttir sem hlutu þann heiður að taka á móti verðlaununum, og fengu þær falleg málverk að gjöf frá félaginu. Nánar verður fjallað um þær Auði og Maríu síðar í Sámi. 

Stjórn félagsins starfsárið 2025 – 2026:
Formaður:
Erna Sigríður Ómarsdóttir.
Stjórn:
Anna María Gunnarsdóttir,
Anna Þórunn Björnsdóttir,
Klara Símonardóttir.
Varamenn:
Elín Edda Alexandersdóttir,
María Björg Tamimi.
 
Siðanefnd:
Anna Guðjónsdóttir – kosin til þriggja ára,
Ásta María Karlsdóttir – kosin til tveggja ára,
Stefanía Björgvinsdóttir – kosin til eins árs.
Varamenn:
Ingibjörg Austmann – kosin til þriggja ára,
Simon Cramer – kosin til tveggja ára,
Þorbjörg Ásta Valgeisdóttir – kosin til eins árs.
 

Picture
Erna Sigríður Ómarsdóttir afhenti þeim Auði Valgeirsdóttur og Maríu Tómasdóttur Guðrúnarverðlaunin. Með þeim á myndinni er Sigurgeir Þráinn Jónsson eiginmaður Auðar.
Picture
Þær Auður og María fengu fallegt málverk að gjöf frá félaginu.
Picture
Góð mæting var á fundinn.

Comments are closed.

    Greinaflokkar:

    All
    Eldri Greinar
    Hundaheilsa
    Hundalíf
    Hundarækt
    Hundaþjálfun
    Tegundakynningar
    Unga Fólkið


Picture

Picture

Ritstjórn og umsjón vefsíðu:
Linda Björk Jónsdóttir, [email protected]
Sámur á facebook


Ritnefnd: 
Anna María Ingvarsdóttir,
​Arnfríður Inga Arnmundsdóttir,

Bára J. Oddsdóttir,
Daníel Örn Hinriksson,

Maríanna Gunnarsdóttir.

​Ábyrgðarmaður:
Erna Sigríður Ómarsdóttir
Útgefandi:
​Hundaræktarfélag Íslands
Melabraut 17
220 Hafnafirði
Sími: 588-5255
Vefsíða: www.hrfi.is
Netfang: [email protected]
Tengdar vefsíður:
www.hrfi.is
www..voff.is
​www.hundavefur.is
  • Greinar
  • Fréttir
  • Hundasýningar
  • Meistarar
  • Útgefin blöð